Jæja, núna er mjög öðruvísi helgi liðin á lok, spennandi sem og gríðarlega skemmtileg þó! Fórum hópur af fræknum einstökum einstaklingum suður að sýna Valhalla-Bank sýninguna sem hluti af Menningarnótt :-) gaman gaman. Fór betur en ég hafði vonað. Svo gistum við nokkur hjá mér í Bergþórugötunni, þar sem ég mun búa næsta vetur :-) .. er mjög spenntur að búa þarna, vægast sagt! Frábær staðsettning. Hitti líka allt mögulegt litróf af fólki yfir helgina, sumir gígantískt leiðilegir en aðrir sætir.
Já, örugglega svona temmilega lítið búið að ske í millitíðinni frá seinustu sumarfærslu svo ég slútta þessu bara með mynd af ketti.

Yfir & út,
JSJ