Wednesday, February 25, 2009

Jón & nýja dagatalið

Whoopah! Nuna hef eg ekki lengur afsökun fyrir ad ruglast á dögum! :-D. Árni og Sunna gáfu mér stórt og flott dagatal med myndum frá Austur-Grænlandi. Myndirnar eru ekkert smá flottar!
En á myndinni hérna fyrir ofan sem er fyrir febrúar mánud má sjá sledahunda hvíla sig nálægt bænum Isertoq.  

Thursday, February 19, 2009

Jón & Hljóðverið

Hérna hafið þið það. Þetta er herbergið mitt í sínu besta formi ;-). Magnarinn út á gólfi, báðir gítararnir innan faðmlengdar frá mér og allt ready to go. Bara blasta ljúfum tónum inní micinn og svo smá fiff hér og þar í ágætu upptökuforriti og voila!

Ekki flókið mál maður, haha.

Yfir og út
- JSJ

Tuesday, February 17, 2009

Jón & framtíðin

Ég er alltaf mega spenntur fyrir framtíðinni og öööööööllu sem hún hefur/hefur ekki uppá að bjóða. Ég ætla mér margt og mögulega að í náinni framtíð að ég smíði mér lista með 100hlutum sem mig langar að gera áður en ég drepst. Bara til að hafa alltaf einhver markmið, því jú - hvar er maður staddur ef maður hefur engin markmið? Mig langar líka bara til að lifa spennandi ævi.

Auðvitað verður maður að passa sig á að lifa ekki í draumalandi og búast við að allt gangi fullkomlega upp en ég bý yfir þessari innri tilfinningu að á endanum fari allt vel - á endanum. Jájá - smá dass af bjartsýni er af hinu góða.

Núna er herbergið mitt í ákveðnu formati. Það er semsagt í upptökustúdíó formatinu - stóri gítarmagnarinn minn er úti á miðju gólfi, báðir gítararnir ekki lengra en faðmlengd í burtu, allt morandi í snúrum og lítill tölvu míkrófónn á gólfinu til að taka upp í. Gæðin eru ekki góð en ... þetta er gaman!! :-D

Bíllinn minn fór í gegnum skoðun fyrir ca. tvem vikum. Eða afsakið, rauk í gegnum skoðun. Pís of 'fokking' keik. Kvöldið áður fórum við pabbi aðeins yfir bílinn, skiptum um perur og hvað eina og það sparar manni að fá ljótan endurskoðnuarmiða. Núna situr bíllinn hálf-bensínlaus út á plani með rauðan fallegan miða á miðri númeraplötunni með töluni 10. Ég var samt helvíti stressaður að þeir myndu finna eitthvað, bíllinn er nú kominn á 18 aldursár!

Mér þykir alltaf vænt um að sjá svona fjölskyldumyndir. Foreldrarnir stóðu nefnilega POTTÞÉTT og horfðu á stelpuna krota á ungabarnið til þess eins að ná góðri mynd og .. hver veit.. kannski jafnvel myndbandi í Americas Funniest Home Videos!


Ú, ú, ú, ú! Þetta er klassík. En ég tengi mig þó aðeins við þennan kauða eins vandræðalegt og það kann að vera, þ.e. að vera svona lélegur í hösslinu.. og almennt vitlaus.

"How come when I talk to girls on Facebook, they don't answer me back?
I go on Facebook everyday and I say 'Hey whats up?' to girls. The girls don't know me but I just want to be friends. Everytime I say 'Hey whats up?' they don't answer back. I like to know what I have to do to get them to answer back."

Bætt við seinna: "I'm not ugly"


http://farm4.static.flickr.com/3464/3203376880_9e0d8d676d_o.jpg

.. Einhver steig á járnsmið. Sveeeekk.

http://www.shof.msrcsites.co.uk/pluto.jpg

Ég sakna Plútó. Mér fannst rangt þegar einhverjir plebbar ákváðu bara að Plútó ætti ekki að vera pláneta, give a guy a break! Dverg pláneta my ass. En samkvæmt þessari auglýsingu þá er þetta það sem við megum búast við! Hæfilegt að enda þetta blogg kannski með gömlum Aerosmith slagara? Held það.




Ef þið hafið samt einhverntímann pælt í því afhverju í ósköpunum ég kem alltaf með einhverjar myndir í bloggunum mínum þá er þetta bara af því að þegar ég skoða netið daglega þá rekst ég yfirleitt alltaf á eitthvað sem er áhugavert, eitthvað sem fær mig til að brosa eða bara flott á eeeeeinhverja vegu - þá finnst mér ágætt að nýta þennan vettvang minn til að deila þessu með ykkur plebbunum.

Jæja njótið vikunnar vel!

Yfir & út
- JSJ

Friday, February 13, 2009

Jón & Laugardagurinn 14. feb.

Mér finnst þetta flottur dagur. Sólin skín í heiði, það er hlýtt - mér finnst þetta samt bara extra fínt því þetta minnir mig á vorið. Snjórinn fer að bráðna hægt og rólega og maður klæðir sig alltaf léttar og léttar. Ahhh - kósí. Síðan er mest líklegt að ég verði annað sumar út á velli hjá Flugfélagi Íslands :-) .. var glaður að heyra að ég væri meira en velkominn. En þó má maður ekki fagna of snemma því það getur alltaf eitthvað komið uppá þannig að maður ætti að leggjast út á atvinnumarkaðinn og reyna að setja nokkur járn í eldinn til öryggis :-).

Annars er merkilegur dagur í dag, Valentínusardagurinn. Ég hef reyndar engan betri helming en ég óska þó öllum hinum vitleysingunum sem eru vopnaðir góðum betri helming farsældar og hamingju á kreppu tímum. Ú, ú, ú,ú - sjáið:


.... But mostly because you have a vagina.

Fyrir allt sérstaka fólkið.


Annars þá held ég að það sé að koma tími fyrir mig til að taka mér smá síðdegisblund! Betra verður það ekki heldur en smá áhyggjulaus síðdegislúr, ahhhh.

Annars var ég að uppgötva tónlistarmann sem heitir Townes Van Zandt. Maðurinn hefur einstaka náð til að semja texta og mætti segja að hann og Bob Dylan tróni saman þarna á toppnum yfir einstaka lagasmiði. En Townes semur þá aðeins öðruvísi tónlist, þetta er oftast bara hann og kassagítar.. einstaka munnharpa og fiðla og þetta er svona kántrí/blús/folk. Þetta er enginn stemmari en þetta er voðalega þæginleg vinnutónlist :-) mæli með þessu hiklaust ef þið hafið áhuga á einhverju svona gömlu með smá sál!

Jæja yfir & út!
- JSJ


Monday, February 9, 2009

Nýjar höfuðstöðvar

Jæja, þá er ég búinn að flytja mig um set. Engar sérstakar ástæður - breytingar eru alltaf stuð. Jú reyndar hérna get ég bloggað úr símanum mínum, það er pínu töff & hentugt fyrir mig.

Jájá, maður lifir sældar lífi þessa dagana. Sit hérna umkringdum pappírum úr þrem mismunandi þýskuáföngum og ef satt má segjast, þá gengur þetta allt skítsæmilega. Er ekki á eftir og er að fá ágætis einkannir fyrir þetta drasl. En þetta snýst nú aðallega um helv. lokaprófin - þau verða að nást, annars engin útskrift í vor. Ekkert stress :-)



Í mínum augum er þessi mynd 100% sönn

See more funny videos and TBT Videos at Today's Big Thing.

Þið ættuð að kannast við þetta ef þið eigið ketti ;-)


Njótið vikunnar vel - skemmtum okkur svo öll vel um komandi helgi! VÍÚVÍÚVÍÚ.

Yfir & Út
- JSJ