Monday, April 12, 2010

Dólgur

Huan Handro hér - alter egóið hans Jóns. Eru samt svipaði gaurar, fólk myndi ekki þekkja muninn á okkur þó. Helst má þekkja mig þegar Jón virðist vera eitthvað aðeins úti á þekju, þegar hann bullar einhverja vitleysu og fylgir því svo snögglega með "ekkert" eða bara almennt þegar hann er ekki svalur - sem er ævintýralega oft. En það er allt í lagi.

Monday, March 22, 2010

Hæ - um daginn voru próf og svona. Nett stress, gekk ekki alveg eftir áætlun - leið smá eins og það hefði verið sparkað í klofið á mér eeeeeen ég hef yfirleitt ágætis lag á því að koma til baka frá svona hlutum - ætla að rúlla þessu upp í næstu prófatíð.

Annars er búið að vera ansi rólegt í Crazy Town, já það er það sem ég kalla líf mitt. Crazy Town. Spaug - Lazy Town væri nær lagi!

Hlakka alveg óþarmalega mikið til Páskanna og svo sumarins. Veit ekki alveg hvaða stefnu ég tek í sumar en vonandi verður hún gott bland af fjöri & flugi. Verð hérna fyrir sunnan, ætla að reyna að verða mér úti um vinnu á Reykjavíkurflugvelli hjá Flugfélagi Íslands.


Þetta er svo 100% satt. Maður fer í klippingu og
maður kemur aldrei út alveg sáttur, því á einhverjum
tímapunkti í miðri klippingunni leit maður upp og
sá hversu sjúklega vel maður leit vel út EN þetta
augnablik er fljótt að líða hjá.


http://i.imgur.com/CLvcc.gif

Þetta er síðan alveg exxxtra skrítið. Horfið
á punktinn og sjáið hvernig svarhvíta myndin
fær lit. Þetta er ekki eitthvað bregðudæmi,
bara plain mynd :-)


Núna er ég samt að spá að taka nett tilhlaup yfir nokkrar glærur, bralla eins og eitt verkefni og sofna svo yfir vel völdum sjónvarpsþáttum. Vúhú.

kv.
- JSJ

Thursday, January 28, 2010

Kúl

Já, það er ég skv. nýjustu fréttum. Ég get samt ekki linkað á fréttina, þið verðið bara að trúa mér LOL. Spaug, ég segi ekki lol.

Ég ætla bara að segja hæ í bili, kasta inn nokkrum myndum. Svo tek ég eitthvað gott blogg maraþon fljótlega. Rokk on dawgs.


*geeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeisp*

Ég linka bara á næstu mynd, hún er svo lööööng - en hún er þess virði.




Tip of the day: Þetta er ástæðan fyrir allri minni velgengni.


Hafið það gott suckassssss.

- JSJ

Sunday, November 29, 2009

Á hvolfi

Tjah, íbúðin er nú reyndar ekki það eina sem er á hvolfi. Ég er á hvolfi, samt ekki meðan ég skrifa þetta þó það væri kannski eitthvað sem ég væri til í að gera - extreme blogging gæti það heitið. Til að útskýra nánar - þá er prófatíð og það þýðir að eina sem maður gerir er að læra og fara í próf.

Ef ég tek saman dagana sem eru í próf undirbúning og dagana sem eru í próf, þá telja þeir ca. 408 klukkustundir eða 17 daga. Af þessum 408 klukkustundum má reikna með ca. 5 klst. í próftöku. Það skilur mig eftir með 403 klst. í allt annað, lærdóm, svefn, klóra mér í rassinum eða 98.78% af heildartímanum. Þetta er bara ALLTOF mikill tími fyrir manneskju að að hafa, í ekki neitt annað en lærdóm og að sinna venjulegum líkamsþörfum. Maður stelst til að vaka aðeins lengur, og fucking voila! maður er búinn að snúa sólahringnum við. Á endanum fær maður þessa björtu hugmynd um að snúa á kerfið að vakna extra-snemma og vaka svo í gegnum allan daginn og með því koma þar með líkamsklukkunni í rétt horf. Málið við það er að maður hefur ekkert nóg að gera til að vaka í heilan dag svo að maður leggur sig og endar með að sofa aðeins of lengi og bleeee.
Þess má geta að þegar við höfum ekki eitthvað til að segja okkur hvað klukkan er, t.d. dagsbirtu sem segir okkur ca. hvað klukkan er, þá gengur líkamsklukkan eina klukkustund meira en við erum vön, þ.e. 25 klst. í staðinn fyrir þessar 24 klst. sem við erum vön :-)

Ef ég hljóma pirraður þá er ég það samt eiginlega ekki, ekki eins og það sé nýtt fyrir mér að hafa snúið sólahringnum við. Ég nýt þess ágætlega, satt best að segja. Mér finnst huggulegt að taka rölt á kaldri vetrarnóttu, vitandi að flestir eru undir sæng í REM svefninum sínum. Kyrrðin róar mig. Kuldinn er líka vinur minn, mér finnst best að labba úti með enga húfu, verða kalt á eyrunum og á nefinu, auðvitað í hófi - allt yfir -14°C er fínt. Ég á nefnilega hvergi betur heima en í kulda, þó svo að mér verði kalt þegar ég gleymi að loka glugganum eða kem úr heitri sturtu í kalt herbergi þá finnst mér fátt betra en að vera í köldu rými, vinna úti í köldu veðri. Ég á nefnilega við það vandamál að stríða að vera alltaf nokkrum gráðum of heitt, svo almennt ræð ég mun betur við kulda en hita. Þessvegna hlakkar mig til þriðjudagsins! Þá er spáð -8°C hérna í Reykjavík og svo ég vitni í James Brown - "that's the way ah-a ah-a, I like it ah-a ah-a".


..bara að halda áfram í kattarþemanu

Whacky eiturlyfja-uglur. Afhverju er það samt að uglur eru tengdar námi? Mér líkar betur að tengja uglur og eiturlyf saman.

YO MOMMA SO FAT, WHEN SHE FARTED THIS HAPPENED.

on a side note, þá mæli ég með að þið opnið þessa mynd í fullri upplausn, þetta er svakalegt.



Já, spennó blogg. Ég hugsa að ég reyni að sofna yfir skemmtilega hljóðinu í ísskápnum mínum, það er einhvernveginn svona *klonk* prrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr... *nokkrar mín af þessu* ... prrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr *klonk*. Ég elska íbúðina mína meira en allt.

Wednesday, November 18, 2009

Kettir




Til að skoða myndirnar í stærri gæðum þarf bara að smella á þær.

Er í prófum, ætti að vera að læra en ákvað frekar að posta þessu. Gaman, gaman, gaman!

Stay cool.

Yfir og út.
- JSJ

Tuesday, September 15, 2009

Bergþórugata 19

Já, hérna eru myndirna af 40fermetrunum mínum. Það reyndar vantar Baðherbergið, en þið hljótið að gera ykkur grein fyrir hvernig það lítur út, lítið með sturtu, vask, klósetti og þvottavél :-)

Annars er helst í fréttum að skólinn er kominn á fullt skrið, alltaf að bætast við nýir og nýir áfangar og námsefnið orðið töluverð vinna að halda utan um þetta allt - en þetta er skemmtilegt námsefni. Þar liggur munurinn á hlutum úr menntaskóla og framhaldsnámi sem maður hefur áhuga á. Núna í dag fékk ég síðan rúm frá vinkonu Barböru sys. Alvöru rúm, vægast sagt! :-) .. kææærar þakkir!

Jæja, svefntími - ahhh. :-)

Tuesday, September 8, 2009

Nýju skólabækurnar, vei!

Jæja! Skólabækurnar komnar í hús. Þetta eru 14bækur samtals en við það bætist eitthvað af skjölum og aukabókum í einhverjum fögum. Ég myndi giska á ad þyngdin á þessu dæmi geti varla verið minni en 35kg, haha :-D. Svo fljótlega förum við að fá skóla uniformin okkar. Fullt að ske! Búja.